Trérista
Efni: krossviðsplata, háþrykkslitur, skurðarjárn, valsar, grafikpappír
Myndin er teiknuð á slétta tréplötu og síðan er skorið ofan í myndina með tréskurðar-járnum.
Litur er borinn á með völsum/rúllum.
Ein plata er fyrir hvern lit eða byrjað að skera í plötuna og ákveðinn fjöldi eintaka er þrykktur.
Síðan er haldið áfram að skera í plötuna og þá þrykkt með næsta lit, þannig er haldið áfram þar til litafjölda er náð.
Þeir fletir eða línur sem standa hæst litast á pappírinn.
Þrykkt er með grafík-pressu eða nuddað með skeið.